1,2 milljarðar farið í ferðakostnað erlendis hjá starfsmönnum landspítalans

Hver var ferðakostnaður erlendis hjá stofnunum sem heyra undir ráðuneytið árin 2014– 2018, sundurliðað eftir stofnunum og árum?

Þannig hljóðar spurning sem Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, beindi til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Leitað var svara hjá öllum helstu stofnunum og embættum sem heyra undir Heilbrigðisráðuneytið.

Í svarinu kemur í ljós að Landspítalinn hefur greitt á árunum 2014 til 2018 vel á annan milljarð eða 1.267.980.171. Hafa farið frá 240 milljónum á ári upp í 272 milljónir á ári í ferðakostnað erlendis.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins greiddi 272.648.730 í sinn ferðakostnað. Hér fyrir neðan má sjá helsta kostnað sem heyrir undir Heilbrigðisráðuneytið.

\"\"