Aukin eftirspurn eftir starfsfólki í ferðaþjónustu og byggingariðnaði hefur kallað á aðflutning erlends starfsfólks hingað til lands í ríkari mæli en nokkru sinni fyrr. Þetta kemur fram í skýrslu ASÍ ´ÍSLENSKUR VINNUMARKAÐUR´. Árið 2017 var fjöldi erlendra ríkisborgara sem fluttust til Íslands umfram þá sem fluttust héðan í sögulegu hámarki og nú er talið að erlent launafólk sé a.m.k. 12-13% launafólks á Íslandi.
Smeltu hér til að lesa alla skýrsluna.