117 þúsund árangurslaus fjárnám

Ásta Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Vilhjálmur Bjarnason, varaformaður samtakanna setjast hjá Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld og fara yfir stöðu þeirra sem misstu heimili sín eftir hrunið og þeirra sem enn eru í skuldafangelsi vegna þess. Ásta og Vilhjálmur segja að ýmsar rannsóknarskýrslur hafi verið gerðar eftir hrun en eins saga sé ósögð og það er saga heimilanna, þannig rannsóknarskýrslu þurfi til að skapa meiri sátt og draga lærdóm af því sem gerðist. Þau segjast tala fyrir daufum eyrum því í slíkri skýrslu þyrftu margir að segjast hafa gert mistök.

Sagan sem er enn ósögð

 Uppgjörið er á forsendum fjármálakerfisin og stjórnmálanna, segja þau en hlutur fólks á íbúðamarkaði hefur aldrei verið gerður upp né hvernig komið var fram við þann hluta almennings sem skuldaði skyndilega of mikið en hann réði við.

 Margs er minnst núna á tíu ára tímamótum Efnahagshrunsins. Vinnu Hagsmunasamtaka heimilana hefur verið haldið áfram óslitið þennan tíma eða frá því samtökin voru stofnuð 2009. Nýfengnar tölur sýna að 10 þúsund fjölskyldur misstu heimili sín á 10 árum, eins og sagt er frá á vefsíðu samtakanna og er þar vitnað í nýlegt svar dómmálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi. Í því svari kom þetta fram varðandi örlög þúsunda heimila.

 Samanlagðar tölur fyrir einstaklinga á árunum 2008-2017 eru þessar og komu fram í svari dómsmálaráðherra seint í sumar.

Nauðungarsölur: 8.846

Gjaldþrotaskipti: 2.973

Árangurslaus fjárnám: 116.939