11,5 milljarðar á leið inn í kerfið

Búast má við 11,5 milljarða króna viðbótarfjárframlagi inn í fjáresfingarumhverfi íslenskra frumkvöðla- og sprotafyrirtækja á næstunni eftir að nýir sjóðir sem eru meðal annars á vegum Lífeyrissjóðanna hafa tekið til starfa. Þetta kom fram í máli Helgu Valfells hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins og Páli Harðarsyni forstjóra Kauphallarinnar í viðskiptaþættinum Hringtorgi á mánudagskvöld. Þar ræddu þau tilkomu nýrra sjóða á borð við Frumtak 2, Eyri Sprota og Brunni sem munu láta að sér kveða í þessum geira á næstu fimm árum svo um munar. Lífeyrissjóðir séu meðal fjárfesta í öllum þessum sjóðum sem hafa fjárfestingargetu upp á 11,5 milljarða samtals, svo sem fyrr er getið.  


Helga Valfells sagði í þættinum að þessi tíðindi myndu skiptu sköpum fyrir nýsköpunarumhverfið hér heima og tók Páll Harðarson heilshugar undir það, en hann segist upplifa mikinn vilji stjórnvalda og þingheims alls til að auka heimildir Lífeyrissjóðanna til að þeir geti fjárfest í þágu margra smærri fyrirtækja. 


Horfa á Hringtorg: