112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að öryggi fólks í umferðinni. Til að minna á mikilvægi þess að fara varlega í umferðinni verður úttkallstækjum viðbragðsaðila lagt á áberandi stöðum við helstu umferðaræðar á höfuðborgarsvæðinu á mestu annatímum í umferðinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Neyðarlínunni.
Þar segir einnig að útkallstæki lögreglu, slökkviliðs, björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Rauða krossins og Landhelgisgæslunnar verði sýnileg við helstu umferðaræðar kl. 8.00-9.00 og aftur kl. 16.00-17.30 í dag. Samstarfsaðilar 112-dagsins utan höfuðborgarsvæðisins grípa víða til sambærilegra aðgerða.
Þá vara samstarfsaðilar 112-dagsins vara fólk sérstaklega við að nota síma og önnur snjalltæki undir stýri, enda sýna rannsóknir að þeir sem hafa hugann við slík tæki í akstri eru margfalt líklegri en aðrir til að valda umferðarslysum. Þeir hvetja jafnframt þá sem ganga og hjóla til að nota endurskin og vera þannig vel sýnilegir þeim sem fara um á bílum.
Sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða á fjölförnum stöðum víða um land í dag og ætla að dreifa 17.000 endurskinsmerkjum Neyðarlínunnar, Landsbjargar og Samgöngustofu. Fólk er eindregið hvatt til að þiggja endurskinsmerkin og nota þau.