Ellefu hundruð manns munu missa vinnuna hjá WOW air eftir að ljóst varð að flugfélagið hafi hætt starfsemi að fullu. Fleiri munu missa vinnuna sem starfað hafa hjá fyrirtækjum sem þjónustuðu flugfélagið en óljóst er hve margir þeir eru. Vísir.is greinir frá.
Þetta segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, í samtali við Vísi.
Hún segir að starfsmenn VMST hafi fundað í allan morgun vegna stöðunnar sem upp er komin og að búið sé að mynda viðbragðsteymi. Unnur segir helsta forgangsmál VMST að þjónusta það starfsfólk sem hafi misst vinnuna og bætir við að enn hafi stofnuninni ekki borist tilkynning um hópuppsögn.
Fjögur þúsund strandaglópar
RÚV.is greinir frá því að fjögur þúsund manns eru strandaglópar. Þetta sögðu Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnaráðherra, frá eftir ríkisstjórnarfund í morgun.
„Það er slæmt að það verður röskun í flugrekstri til og frá landinu og alveg ljóst að það er margt starfsfólk sem verður fyrir áhrifum og margir farþegar,“ segir Bjarni í samtali við RÚV.
Sigurður Ingi sagði að ljóst hefði verið laust undir miðnætti í gærkvöldi í hvað stefndi. Hann sagði að viðbragðsáætlun stjórnvalda hafi verið virkjuð og miðar hún einkum að því að koma fólki á áfangastað. Búið er að hafa samband við Icelandair og easyJet í þeim tilgangi.
Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að flugfélagið vinni nú að áætlun um að aðstoða þá flugfarþega sem þurfa á að halda að komast heim. Icelandair geri sér grein fyrir þeirri stöðu sem komin er upp í ljósi þess að WOW air hafi hætt rekstri og gerir ráð fyrir því að ljúka áætluninni á næstu klukkustundum.
Hagkerfið vel í stakk búið
Ríkisstjórn Íslands segir í stuttri yfirlýsingu að fréttirnar séu vonbrigði en að hagkerfið sé vel í stakk búið til að takast á við áskorunina sem fylgi því að WOW air hafi lagt upp laupana.
Yfirlýsing ríkistjórnarinnar í heild:
„Ríkisstjórn Íslands lýsir yfir vonbrigðum með að tilraunir WOW air hf. til að tryggja rekstur félagsins skiluðu ekki árangri. Viðbúnaðarhópur stjórnvalda fylgist grannt með því að heimflutningur farþega gangi greiðlega fyrir sig.
Rekstrarstöðvun WOW air hf. er mikið áfall fyrir starfsfólk félagins og aðra þá sem byggt hafa afkomu sína á starfsemi þess
Staða efnahagsmála er sterk og hagkerfið vel í stakk búið að takast á við þessa áskorun. Efnahagsleg áhrif verða einkum til skamms tíma og kalla á endurmat áætlana en áhrifin til lengri tíma ráðast af þróun á markaði.“