11 manns sýkst af listeríu síðustu tvö ár – fjórir létust árið 2017

„Listería er baktería sem lifir alls staðar í umhverfinu, það er ekkert við því að gera. Svo getur hún komist í matvæli og sýkt fólk, sérstaklega fólk með undirliggjandi bælingu á ónæmiskerfinu.“

Þetta segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, í samtali við Fréttablaðið í dag.

Í umfjöllun Fréttablaðsins segir að samkvæmt tölum frá Embætti landlæknis hafa 11 manns sýkst af listeríu síðastliðin tvö ár og er það nokkru meira en árin á undan. Fjórir létust af völdum listeríu árið 2017. Þrír af þeim voru eldri einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma og hinn einstaklingurinn var nýfætt barn sem lést skömmu eftir fæðingu. Hafði barnið smitast í móðurkviði.

Haraldur Briem, ráðgjafi sóttvarnalæknis, segir í samtali við Fréttablaðið að listería geti valdið blóðsýkingu, iðrasýkingu, sýkingum í líffærum sem og miðtaugakerfi. „Þessi baktería hefur oft tengst sjávarafurðum, hún getur líka fundist í ógerilsneyddum osti. Listería hefur þann eiginleika að geta lifað af kælingu, hún er sérstök að því leyti að hún getur fjölgað sér í ísskáp. Flestir veikjast ekkert af henni, en sýkingar eru alvarlegar fyrir þá sem eru veikir fyrir.“

Þórólfur og Haraldur segja því fulla ástæðu til að vara þungaðar konur við að neyta fisks sem er ekki fulleldaður, auk ógerilsneyddra matvæla. „Það er einmitt gert í mæðraverndinni, þunguðum konum er ráðlagt að neyta ekki svoleiðis matvæla. Ég veit ekki hvort það sé gert við einstaklinga sem eru ónæmisbældir, ég vona að það sé gert. Þetta eru sjaldgæfir sjúkdómar sem betur fer. Við sjáum þetta koma í hrinum. Kannski koma ekki upp nein tilfelli í nokkur ár, svo koma ár eins og 2017 þar sem sjö einstaklingar sýktust,“ segir Þórólfur.

Umfjöllun Fréttablaðsins má lesa í heild sinni hér.