11 ára geðveik stúlka með einhverfu fær hvorki skólavist né meðferð

Í opnu bréfi til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra furðar Hrönn Sveinsdóttir, móðir 11 ára geðveikrar stúlku með einhverfugreiningu, sig á að dóttir sín fái hvorki skólavist né þá meðferð sem hún þarfnast. Henni er gjörsamlega misboðið yfir stöðunni.

Hrönn segir í bréfinu, sem birtist í Fréttablaðinu: „Ellefu ára dóttir okkar er geðveik. Ég segi það bara til þess að einfalda og spara plássið fyrir skilgreiningarnar á því hvað hún hefur verið greind með í gegnum tíðina, en ferlið hefur spannað frá því að hún var fimm ára og bráðgreind, þrjósk og sérstök stúlka yfir í að fá hvorki lengur skólavist né meðferð á Íslandi.“

„Frá því að hún var fimm ára höfum við farið með hana frá geðlækni yfir í þjónustumiðstöð, þaðan í þroska- og hegðunarmiðstöð, setið öll foreldranámskeið og hegðunarnámskeið sem mögulega hafa verið í boði á Íslandi. Setið sama félagsfærninámskeiðið þrisvar. Verið vísað af reiðinámskeiði fyrir að vera reiðar og svo framvegis,“ skrifar Hrönn.

Hrönn segir að þegar foreldrunum var loks vísað á Barna- og unglingageðdeild Landspítala hafi þau haldið að lausn á vandanum væri í augsýn, þar sem þau töldu að ekki væri hægt að komast mikið lengra í kerfinu. „Á þessum tíma fékk dóttir okkar einhverfugreiningu sem er eitthvað sem okkur hafði aldrei grunað, en það er víst svo að stúlkum með einhverfugreiningu tekst að dylja það betur en drengjum, en vísindin eru víst öll skrifuð út frá þeim. Eftir ár á göngudeild BUGL höfum við foreldrarnir setið ótal fundi með málastjóra sem fer reglulega yfir hvað gerðist á síðasta fundi og talar um hvað eigi að gera næst. Bjúrókratískt en ekkert meira en það. Við hittum geðlækni sem talar við okkur um lyfjagjöf, sumt hefur verið prófað, en ekkert hefur virkað vel.“

„Á meðan hefur stúlkunni okkar hrakað hratt í skóla og félagslega. Við höfum nokkrum sinnum kallað til neyðarfunda og átt neyðarsímtöl við BUGL. Okkur hefur ekki einu sinni verið boðið að tala við sálfræðing sem hefur getað sett sig inn í hennar vanda eða gripið inn í það sem er að gerast í skólanum eða á heimilinu. Þegar fulltrúar skóla og BUGL hittust fyrir um mánuði síðan, gjörsamlega ráðþrota, þá var talað um einhverfuráðgjafa. En það er enginn einhverfuráðgjafi á BUGL,“ skrifar hún.

Hrönn finnst það skrítið að ekki sé til neinn starfsmaður á BUGL sem geti hjálpað dóttur hennar. „Já, það er enginn einhverfuráðgjafi á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Það er bjúrókratískt utan landamæra. Við sitjum uppi með dóttur sem hegðar sér eins og köttur, skaðar sjálfa sig og aðra og er einhverf, en það er ekki til sálfræðingur eða ráðgjafi sem getur talað við hana á BUGL. Er ég ein um það að finnast það skrítið?“ spyr hún.

Nú er komin upp sú staða að skóli dóttur Hrannar treystir sér ekki til að tryggja öryggi hennar né starfsmanna skólans. Hrönn og eiginmaður hennar lögðu inn beiðni um innlögn á BUGL en í bili er ekkert hægt að gera. „[Þ]að er ekki hægt að leggja hana inn á BUGL, né fá vist fyrir hana í öðrum skóla. Það verður haldinn fundur 5. maí á BUGL og þá verður rætt hvar hún mögulega sé á biðlistanum. Þá tekur við meiri bið,“ skrifar Hrönn.

Því er staðan þessi: „Dóttir okkar er ekki lengur með skólavist á Íslandi. Hún fær heldur enga ráðgjöf við einhverfu. Við komumst í samband við einhverfuráðgjafa sem starfar í einkaþjónustu og hún skýrði fyrir okkur að einhverfuráðgjafar væru ekki innan kerfis. En þeir eru hins vegar á Greiningarstöð ríkisins en þar fáum við ekki inni því dóttir okkar er ekki þroskaskert með dæmigerða einhverfu. Tíminn hjá ráðgjafanum kostar 12.000 krónur. Hún bauð okkur að hitta sig. Þá fannst mér ég hitta manneskju sem raunverulega hafði skilning á vanda dóttur minnar. En við höfum ekki aðgang að henni í kerfinu.“

Fjölskyldan er þar með á eigin vegum og þarf að hafa dóttur sína heima þar til 5. maí. „Ef hún væri fótbrotin værum við ekki búin að sitja tvo neyðarfundi og svo verið sagt að það verði haldinn fundur um það 5. maí hvar hún sé stödd á biðlistanum. Sem stendur er dóttir mín ekki með skólavist á Íslandi, ekki með meðferðarúrræði við hæfi og við verðum að hitta einhverfuráðgjafa sem gæti mögulega hjálpað henni á okkar eigin kostnað,“ skrifar hún.

Að lokum spyr Hrönn heilbrigðisráðherra: „[E]r það „geðveikisleg“ tilætlunarsemi að einhverf stúlka fái ráðgjöf og stuðning einhverfuráðgjafa sem sérhæfir sig í einhverfu stúlkna? Er það hluti af vestrænu velferðarsamfélagi á 21. öldinni að foreldrar séu vinsamlegast beðnir um að „geyma“ geðveik börn sín í nokkrar vikur þar til einhver biðlistafundur á sér stað?”