Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Aron Ólafsson, formaður Stúdentaráðs, tóku fyrstu skóflustungurnar að nýjum Stúdentagörðum í Brautarholti í gær, en þær verða alls rösklega hundrað talsins.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá borginni er stefnt að því að húsin verði tilbúin í ágúst 2016 og er vonast til þess þær muni svara aukinni eftirspurn stúdenta eftir viðráðanlegu húsnæði. Um 800 námsmenn voru á biðlista að lokinni úthlutun síðastliðið haust og búist er við álíka fjölda í ár.
Íbúðirnar verða 102 og eru hugsaðar fyrir barnlausa stúdenta. Staðsetning garðanna er á margan hátt hentug fyrir stúdenta við Háskóla Íslands sem sækjast eftir að búa í nágrenni við skólann og miðsvæðis í borginni. Brautarholt er í göngufæri við húsnæði HÍ í Stakkahlíð og það er heldur ekki langt að ganga eða hjóla til og frá háskólasvæðinu í Vatnsmýrinni. Frá Brautarholti er stutt í almenningssamgöngur og alla þjónustu.
Segir í tilkynningunni að Reykjavíkurborg hafi það að markmiði að byggja um 400 stúdentaíbúðir og eru byggingarnar í Brautarholti mikilvægt skref í þeim efnum.
Garðarnir eru staðsettir í Brautarholti nr 7, á milli Mjölnisholts og Ásholts. Þar munu rísa tvö hús, alls um 4.700 m2, með 102 litlum íbúðum fyrir barnlausa stúdenta. Um byggingu sér Jáverk ehf en THG arkitektar eru aðalhönnuðir.