10.000 rauðir treflar mótmæltu gulu vestunum

Um eða yfir 10.000 manns tóku þátt í mótmælum í París í dag. Að þessu sinni voru mótmælendur þó ekki klæddir gulum vestum, heldur skreyttu sig með rauðum treflum, enda kallar hreyfingin sig rauðu treflana. Yfirlýst markmið hreyfingarinnar er að verja lýðrlðið og franskt samfélag gegn vaxandi ofbeldi og upplausn, og beinast mótmæli rauðu treflanna raunar einkum og aðallega gegn gulu vestunum. 
 

Lögreglu reiknast til að um 10.500 manns hafi gengið frá Place de la Nation í austurhluta miðborgarinnar og að Bastillutorginu. Talsmenn rauðu treflanna segja fólk orðið þreytt á ofbeldinu, óspektunum og allri þeirri röskun sem fylgt hefur nær þriggja mánaða mótmælaaðgerðum gulvestunga gegn Macron og ríkisstjórn hans. Rauðu treflarnir segjast þó ekki styðja Macron og flokk hans frekar en aðra flokka, heldur fullyrða að þetta sé þetta þverpólitísk hreyfing til varnar lýðræðinu.

Nánar á 

http://www.ruv.is/frett/10000-raudir-treflar-motmaeltu-gulu-vestunum