Allt stefnir í að einn stærsti svínaræktandi landsins, Síld og fiskur aki með hundruð grísa á haugana verði undanþágubeiðni fyhrirtækisins um slátrun hafnað í dag. Litlar líkur eru á öðru, því dýralæknar heimila undanþágu ef kjötið er fryst, en Síld og fiskur vill ekki gangast undir þá skilmála.
Þar eð hvorugur deilandinn vill gefa eftir í þessu máli má ljóst vera að gríðarlegt magn af mat fer til spillis, en forráðamenn Sílds og fisks áætla í yfirlýsingu sem þeir hafa gefið frá sér vegna málsins að þeir þurfi að aflífa 120 til 150 grísi í kvöld eða á morgun, verði undanþágubeiðninni hafnað eins og allt útlit er fyrir að verði gert. Þar með færu á haugana um 100 þúsund máltíðir sem vitaskuld er ömurleg sóun á matvælum að þeira mati.
Dýralæknar segja að Síld og fiskur skeri sig úr öðrum svínaræktendum í landinu og neiti því að frysta afurðir sínar að fenginni undanþágu til slátrunar. Aðrir ræktendur sætti sig við þá skilmála og því megi ljóst vera að forráðamenn Sílds og fisks fari fram af meiri hörku í málinu en aðrir.
Verkfall dýralækna innan BHM hefur nú stapið yfir í vel á annan mánuð og valdið gríðarlegum vandræðum í matvælageiranum á Íslandi. Þunglega horfir við samningaborðið.