100 þingmál ráðherra enn ókomin

Aðeins 29 þingmál eru komin fram til þings af þeim 127 sem átti að leggja fram á þessu haustþingi. Athygli vekur að þrír af tíu ráðherrum stjórnarinnar hafa ekki lagt fram nein mál enn.

Þetta kemur fram í ítarlegri úttekt í Fréttablaðinu í morgun, en þar kemur fram að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra er ráðherranna duglegastur í þessum efnum, hefur lagt fram 44% sinna mála. Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra fylgja á hæla Gunnars Braga með framlagningu undir þriðjungi sinna mála. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, atvinnuvegaráðherra hafa birt fjórðung sinna mála, Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra litlu minna og Ólöf Nordal, innanríkisráðherra fimmtung sinna mála.

Ráðherrarnir Eygló Harðardóttir, Illugi Gunnarsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir reka hér lestina, en ekkert þeirra hefur lagt fram þingmál á þessu haustþingi.