100% öruggt að guðni býður sig fram

\"Ég veit ekki hvort Guðna er þægð í því að ég segi það, en jú, það er 100% öruggt að hann hefur tekið ákvörðun um að bjóða sig fram til forseta.\"

Þetta segir aðili, tengdur Guðna, í samtali við Hringbraut en kýs nafnleynd að svo stöddu.

Fyrr í dag hafa birst fregnir af því að Guðni hafi sagt verðandi kjósendum að þeir geti kosið hann í utankkjörstaðarkosningu, það sé ákveðið að hann bjóði sig fram. Þá hefur verið stofnað félag um framboð hans. Opinberlega mun Guðni kynna ákvörðun sína á fundi á uppstigningardag.

Guðni verður eftir því sem Hringbraut kemst næst eini frambjóðandinn sem ekki er í þjóðkirkjunni. Hann þykir á miðjunni, er doktor í sagnfræði, sérfræðingur í sögu forsetaembættis svo nokkuð sé nefnt, fjölskyldumaður sem varð landsfrægur þegar Wintrishneykslið skók þjóðfélagið og Guðni greindi stöðuna í beinum sjónvarpsfréttaútsendingum.

Framboð hans hefur vakið mikla athygli og sýnir könnun Frjálsrar verslunar að hann gæti velt Ólafi Ragnari úr sessi.