100 milljónir í jafnréttissjóð á ári

Hátíðarfundur verður haldinn á Alþingi á morgun, 19. júní á 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna og hefst hann kl. 11:00. Fyrir fundinum liggur tillaga til þingsályktunar um Jafnréttissjóð Íslands.

Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson setur fundinn og flytur ávarp. Að loknu ávarpi þingforseta hefst síðari umræða um dagskrármálið, Jafnréttissjóð Íslands og talar þar einn frá hverjum flokki í þeirri umræðu. Samstaða er meðal allra flokka Alþingis um framlagningu málsins.  Að lokinni atkvæðagreiðslu um málið flytur forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson ávarp. Kvennakórinn Vox feminae, undir stjórn Margrétar Jóhönnu Pálmadóttur, syngur á hátíðarfundinum.

Samkvæmt þingsályktunartillögunni mun Jafnréttissjóður Íslands hafa að markmiði að fjármagna eða styrkja verkefni sem ætlað er að stuðla að frekari framþróun á sviði jafnréttismála hérlendis og efla stöðu kvenna í þróunarlöndum. Til þessara verkefna er ætlunin að veita sjóðnum 100 milljónir króna árlega næstu fimm ár, 2016–2020. Samkvæmt tillögunni kýs Alþingi þriggja manna stjórn sjóðsins og jafnmarga til vara. Stjórn sjóðsins er ætlað að eiga samvinnu við samtök kvenna, aðila á vinnumarkaði, ráðuneyti, skóla, sjóði og stofnanir um viðfangsefni sjóðsins og tilkynna um úthlutanir úr honum 19. júní ár hvert.