100 manns hirða mesta kvótagróðann

Ætla má að innan við hundrað manns fái megnið af þeim arði sem fellur til af veiðum og vinnslu hér við land, en einungis 22 fyrirtæki falla í .þann flokk að fá úthlutað einu prósenti eða meira af heildarkvótanum.

Þetta kemur fram í ítarlegri úttekt í Reykjavík vikublaði um nýliðna helgi, en þar segir að umrædd fyrirtæki fái úthlutað um þremur fjórðu af öllum kvóta hér við land. Blaðið segir að þó sé ekki allt sem sýnist í þessum efnum; þannig séu eignatengsl á milli sumra þessara fyrirtækja sem bæði þétti eignaraðirnar og tengi fyrirtækin líka við hluta þess afla sem fellur utan kvótaeignar þeirra.

Á milli 90 og 100 einstaklingar eru að sögn blaðsins í hópi helstu eigenda þessara fyirirtækja þegar eignakeðjan hefur verið rakin, en þá eru lífeyrissjóðir, skráð fyrirtæki og kaupfélög tekin út fyrir sviga í þessum efnum.

Blaðið bendir á að innbyrðis séu einatt mikil tengsl á milli fyrirtækjanna 22. Nefna megi að Samherji eigi Útgerðarfélag Akureyrar og sömuleiðis eigi Samherji og Gjögur sameiginlega Síldarvinnsluna, en svo eigi Síldarvinnslan aftur á móti útgerðina Berg-Hugin og svo megi áfram telja.

\"Völd, áhrif og peningalegur ágóði þeirra einstaklinga sem eru að baki þessum fyrirtækjum geta því verið mun meiri en ætla má við fyrstu sýn,\" segir í Reykjavík vikublaði um helgina.    .