100 konur ofsóttar á síðustu 5 árum

Á bilinu 15 til 20 konur leita til Stígamóta á hverju áru vegna ofsókna af hálfu karlmanna. Afar erfitt er fyrir lögregluna að aðhafast í ofsóknarmálum og upplifa margar konur því úrræðaleysi.

Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag, en þar segir Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu að oft geti verið vandasamt að taka á þessum málum; ekki sé ólöglegt að standa fyrir utan hús eða hringja í fólk svo það getur verið afar snúið að bregðast við slíkum málum, sérstaklega ef nálgunarbann er ekki til staðar.

Fram kemur í blaðinu að um eitt hundrað konur hafa leitað til Kvennaathvarfsins á síðastliðnum fimm árum eftir að hafa verið ofsóttar, í flestum tilvikum af fyrrverandi maka.

Þá er vitnað í tvær ónafngreindar konur sem segjast hafa orðið fyrir miklum ofsóknum. Einn af þeim hefur verið ofsótt af sama manninum í tuttugu ár og óttast nú að maðurinn fari að ofsækja dóttur hennar.

Hin konan sem Fréttablaðið ræddi við sagði að eltihrellir, sem ofsótti hana í nokkra mánuði, hafi meðal annars hótað henni pyntingum og nauðgun.