Tollverði á Seyðisfirði fundu mikið magn af af fíkniefnum í húsbíl sem kom með Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu var lagt hald á um 100 kíló og er erlent par sem var á bílnum í haldi lögreglu. Þau voru í morgun flutt til Reykjavíkur til yfirheyrslu.
RÚV greindi frá þessu í hádeginu, en í frétt miðilsins segir að duftið hafi verið í mörgum pokum. Greining á efnunum hafi ekki enn farið fram, en lögreglan Austurlandi vilji ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
Fréttamaðurinn mbl.is segist hafa heimildir fyrir því að efnið sem hafi fundist sé hvítt og að þetta sé eitt stærsta fíkniefnamá sem hafi komið upp á Íslandi.
Visir.is kveðst hafa heimildir fyrir því að gerð hafi verið upptæk um þrjátíu kíló af hvítu efni.
Þetta er annað stóra fíkniefnamálið sem kemur upp á þessu ári. Um páskana voru hollenskar mæðgur stöðvaðar með tæplega 20 kíló af fíkniefnum. Stúlkan var ekki ákærð en hún kvaðst ekki hafa vitað af fíkniefnunum.