Þyrla Landhelgisgæslunnar var tíu tíma að sækja nýbura til Neskaupsstaðar í gær og nótt, en ekki tókst að lenda þyrlunni á Norðfirði sakir sviptivinda og varð hún því að fara suður til Breiðdalsvíkur til lendingar.
Í fyrstu átti að reyna að ná í barnið með sjúkraflugvél, en óveður kom í veg fyrir það. Því var kallað á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Vélin lagði upp frá Reykjavík klukkan 17:38 í gærdag með sérhæfðan lækni og hjúkrunarfræðing um borð og átti flugið að taka sex tíma fram og til baka með millilendingu á Hornafirði báðar leiðir til að fylla loftfarið af eldsneyti.
Um mitt gærkvöld kom í ljós að ekki var hægt að lenda í Neskaupstað. Hélt þyrlan þá út fyrir annes aftur og freistaði þess að lenda á Stöðvarfirði en þar voru veðuraðstæður einnig afar slæmar. Að lokum gat þyrlan lent á Breiðdalsvík þrátt fyrir mikinn vind, en stöðugan, og var hún lent þar um klukkan 22:00. Björgunarsveitin Gerpir kom þangað með barnið frá Neskaupstað og var flogið af stað til Hafnar í Hornafirði þar sem eldsneyti var tekið á þyrluna á ný. Þar tók þyrlan sig loks upp og flaug til Reykjavíkur þar sem lent var á fjórða tímanum í nótt.
Ekki hefur frést af líðan barnsins.