Vinnustöðvun ríflega 10 þúsund félagsmanna Starfsgreinasambands Íslands, SGS, hefst í næstu viku. Félagsmenn SGS samþykktu aðgerðirnar með yfirgnæfandi meirihluta, eða 94,6%, í atkvæðagreiðslu sem staðið hafði í eina viku og lauk á miðnætti í gær.
Kjörsókn var 50,4% sem var að sögn forkólfa sambandsins umtalsvert meiri en væntingar verkalýðsfélaganna höfðu staðið til.
Verkfall félagsmanna SGS hefst fimmtudaginn 30. apríl og stendur fyrst um sinn yfir í hálfan sólarhring, frá hádegi til miðnættis. Eftir það taka við regluleg sólarhringsverkföll þar til ótímabundið verkfall hefst 26. maí. Ljóst er að verkföllin munu hafa víðtækl áhrif á fjölda vinnustaða um land allt.
Björn Snæbjrönsson formaður SGS hefur látið hafa eftir sér að hann sé mjög vondaufur um að samningar náist á næstu vikum - og ekki hjálpi til að ríkisstjórnin dragi lappirnar þegar kemur að útspili hennar til að liðka fyrir samningum.