10 þúsund verkamenn á leið í verkfall

Atkvæðagreiðslu félagsmanna Starfsgreinasambandsins um heimild til verkfallsboðunar lýkur í kvöld, en kosningin sem er rtafræn, gengur afar vel að sögn Björn Snæbjörnssonar formanns félagsins. Talið er fullvíst að félagsmenn ákveði að leggja niður störf sem er í samræmi við fyrri kosningu, en hún var dæmd ógild sakir formgalla.


Innan Starfsgreinasambanfdsins eru 10 þúsund félagsmenn og komi til verkfalls þeirra hefur það gríðarleg áhrif á þá atvinnugrein sem skapar mestar tekjur í samfélaginu um þessar mundir; ferðaþjónustuna. Björn segist greina mikinn stuðning við aðgerðir; í reynd hafi steininn tekið úr þegar stjórnarmenn í HB Granda afréðu að hækka við sig laun um 33% á sama tíma og þeir séu tilbúnir að gauka tíu sinnum lægri hækkun að verkafólki. Tímasetning þessarar ákvörðunar hafi virkað eins og blaut tuska framan í allt hugsandi fólk og ekkert sé meira um talað á vinnustöðum en þennan fádæma gjörning.