10 þúsund manns í verkfall í dag

Tíu þúsund félagsmenn Starfsgreinasambandsins leggja niður vinnu á hádegi og stendur vinnustöðvunin fram til miðnættis. Samingafundur sambandsins við viðsemjendur sína hefst á ellefta tímanum en útilokað er að samningar náist fyrir hádegi.


Verkfallið hefur mikil áhrif á fiskvinnslu, matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu úti á landi, en innan Starfsgreinasambandsins er allt verkafólk utan höfuðborgarsvæðisins þar sem Flóabandalagið ræður ríkjum. Í næstu viku er boðað tveggja daga tímabundið verkfall og svo annað samskonar þegar líður á maí, en 26. þess mánaðar hefst svo ótímabundið verkfall sambandsins hafi ekki samist fyrir þann tíma.


Ljóst er að innan ferðaþjónustunnar munu eigendur gistiheimila og hótela reyna að ganga í störf almennra starfsmanna eins og þeir hafa heimild til, en því er vart að fagna á stærri vinnustöðum eins og fiskvinnslum og matvinnslufyrirtækjum þar sem verkfallið fer þegar að hafa mikil áhrif.