10 þúsund manns án atvinnu á íslandi

Hagstofa Íslands hefur sent frá sér árstíðaleiðréttar tölur vegna vinnumarkaðsrannsóknar. Vinnumálastofnun tilkynnti um 3,6% atvinnuleysi á sinum tíma. Svo reyndist ekki vera rétt og eftir leiðréttingar Hagstofunnar reyndist atvinnuleysi hærra í maí eða 4,7 % og var fjöldi atvinnulausra því um 10 þúsund manns.  Fyrir sama tímabil lækkaði leiðrétt hlutfall starfandi fólks um tvö og hálft prósentustig, eða í 77,2% fyrir maí 2019.