Tveggja daga vinnustöðvun Starfsgreinasambandsins hófst á miðnætti en þar með leggja 10 þúsund félagsmenn þess niður störf fram á fimmtudagskvöld. Verkfallið hefur lamandi áhrif á fiskvinnslu, matvinnslu og ferðaþjónustu.
Athafnasvæði Starfsgreinasambandsins er utan höfuðborgarsvæðisins og Suðurnesja og er fjölmennasta félagið innan þess Efling-Iðja á Eyjafjarðarsvæðinu, en formaður þess, Björn Snæbjörnsson er jafnframt formaður SGS. Hann metur það svo að enn sé langt þar til raunverulegar samningaviðræður geti hafist og því séu miklar líkur á að sambandið fari í annað tveggja daga verkfall síðar í mánuðinum. Undir lok hans kemur svo til ótímabundins verkfalls hafi ekki verið samið fyrir þann tíma.
VR, verslunarmenn og Flóabandalagið efna á næstu dögum til atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls, sem myndi þá bætast við vinnustöðvun þeirra stéttarfélaga sem þegar hafa lagt niður vinnu. Fram kom í þættinum Ritstjórarnir á Hringbraut í gærkvöld að hliðstæðu þessara átaka á vinnumarkaði væri vart að finna á síðustu árum og þyrfti líklega að leita allt aftur til ársins 1977 þegar svokallaðir Sólstöðusamningar voru gerðir og kynntu glóðir verðbólgubálsins svo um munaði.