Á þeim aldarfjórðungi sem liðinn er frá því Stígamót hófu starfsemi hafa rétt rösklega 10 þúsund gerendur í kynferðisbrotamálum komið við sögu samtakanna. Þetta kom fram í þættinum Fólk með Sirrý í gærkvöld þar sem rætt var um fjölmargar hliðar kynferðisofbeldis.
Það kom þar af leiðandi ljóst fram í þættinum að kynferðisbrotamenn eru hvorki afmarkaður né lokaður hópur fólks. "Þeir eru á meðal okkar," eins og orðað var í þættinum - og eru gjarnan venjulegt fólk sem fellur inn í samfélagið eins og hverjar aðrar manneskjur.
Í þættinum kom átakið Beauty tips mjög við sögu, en það er sagt vera "bylting gegn því að réttarkerfið virkar ekki," eins og Anna Bentína Hermansen starfskona Stígamóta orðaði það í þættinum í gærkvöld. Hvað ætlum við að gera í því? spurðu Anna jafnframt; hún hefði á sínum tíma kært kynferðislegt ofbeldi og þegar gerandinn hafi verið dæmdur saklaus hafi það reynst hennar eigin sakfelling. Konur séu gerðar að lygurum.
"Ábyrgðarferlið og hliðarréttlæti er leið fórnarlamba þegar réttarkerfið bregst" sagði Valur Grettisson í þættinum en hann skrifaði bókina Gott fólk sem tekur eftirminnilega á þessum málum - og fólk í þættinum hvatti almenning til að lesa sér til fróðleiks.
Ósk Gunnlaugsdóttir sem skrifaði á Beauty tips um þær raunir sínar að frægur maður nauðgaði henni, sagði í þættinum hjá Sirrý að fólk í hennar stöðu langi gjarnan til að gerandinn sjái eftir því að hafa meitt aðra manneskju. "Fórnarlömbin vilja sjá mennsku, iðrun," sagði hún í þættinum og taldi réttarkerfið ekki virka. "Og hvað ætlum við að gera í því," spurði Ósk í Fólki með Sirrý.
Hægt er að sjá þáttinn hér á Hringbraut.