10% skólakrakka tala ekki íslensku

Tíunda hvert grunnskólabarn á Íslandi í dag er með annað móðurmál en íslensku. Þetta kom fram á ráðstefnu samtakanna Móðurmál um síðustu helgi þar sem rætt var um tvítyngi og fjöltyngi, hvaða tækifæri eru í fjölbreytileika tungumálanna og hvernig efla má þennan hóp barna og ungmenna í skólakerfinu.
 

Fram kemur á fréttavef RÚV í fdag að frá 2001 hafa samtökin stutt tvítyngd börn og styðja móðurmálskennara sem vinna með börnunum. Forsvarsmenn þeirra vilja jafnframt reyna að tryggja tvítyngdum börnum tækifæri til að læra móðurmálið sitt en ekki allir foreldrar þessara barna eru meðvitaðir um mikilvægi þess, heldur reyna sitt besta til að tala einungis íslensku á heimilinu. 

Móðurmálsskilningur skiptir ekki einungis máli innan fjölskyldunnar heldur einnig fyrir íslenskt samfélag, segir Maria Sastre varaformaðurMóðurmáls og undir þessi orð tekur Renata Emilsson Peskova, formaður samtakanna. Það sé gills ígildi að búa að tveimur menningarheimum: \"Það er fjársjóður fyrir íslenskt samfélag að eiga einstaklinga sem tala tvö eða fleiri tungumál, þekkja menningu og hefðir annara þjóða, það kemur að miklu gagni t.d. í viðskiptum.“

Börnin sem ekki læra móðurmálið vel geta misst hluta af sjálfum sér og tapað rótunum, sem liggja kannski í öðru landi. Sé ekki unnið með móðurmálið eru jafnframt líkur á að skólagangan reynist erfiðari, að mati þeirra Renötu og Mariu. 

Þær segja ástandið í skólun landsins að breytast til hins betra. Kennarar séu meðvitaðir um mikilvægi þess að tvítyngd börn haldi tengslum við móðurmálið. En mikil vinna sé framundan. Tveir tvítyngdir kennarar hafa til að mynda verið ráðnir í tilraunaverkefni til að styðja tvítyngd börn í grunnskólum Reykjavíkur. Þetta sé í samræmi við fjölmenningarstefnu borgarinnar en þar stendur að leita eigi leiða og kennsluaðferða til að styðja tvítyngd börn. 

Líklegast er að valdir verði kennarar sem tala tungumál sem algeng eru meðal tvítyngdra og að þeir verði staðsettir í skólum þar sem mörg tvítyngd börn er að finna.  Töluverð þjónusta er nú þegar fyrir börn á pólsku og því líklegt að pólska verði ekki fyrir valinu heldur t.d. víetnamska eða filipseyska, en ákvörðun liggur ekki fyrir enn.