„Það má segja að ég og maður minn höfum strax fundið fyrir efnahagslegum áhrifum COVID. Hann er sjálfstætt starfandi tónlistarmaður og missti öll sín verkefni strax í lok febrúar og sér ekki fyrir endann á því. Ég var að vinna á fallegum veitingastað í Þorlákshöfn við markaðsmál og tónleikahald en var sagt upp í lok mars. Það er alveg sérstök tilfinning að missa vinnuna og vondur staður að vera á sérstaklega þegar ástandið er eins og það er ,“ segir Ása Berglind í helgarviðtali Fréttablaðsins sem birtist í dag. Neðst í fréttinni má finna 10 ráð frá Ásu til verðandi brúðhjóna.
Hún og maðurinn hennar Tómas Jónsson tónlistarmaður höfðu ákveðið að gifta sig í sumar og halda enn í vonina um að það gangi þrátt fyrir að fjölmargir hafi frestað brúðkaupsdeginum vegna COVID-19 faraldursins.
„Rétt fyrir jól greindist pabbi minn með alvarlegt krabbamein, aðeins 57 ára gamall. Það ýtti við okkur, því lífið er jú bara akkúrat núna. Þar að auki get ég ekki hugsað mér að gifta mig án þess að hafa pabba minn með og eins og þetta leit út til að byrja með þá vorum við ekki sérlega bjartsýn,“ segir hún.
„En það er gaman að segja frá því að við fengum stórkostlegar fréttir í lok apríl, þegar niðurstöður úr rannsóknum sýndu að hann er að svara lyfjameðferð mjög vel, svo nú horfum við bjartari augum fram á veginn,“ heldur hún áfram.
Ása segir að brúðkaup sé sérstakur viðburður. „Okkur langar að fagna þessum degi með stórum hópi vina og ættingja og það er í virkilega mörg horn að líta í undirbúningnum,“ segir hún.
Hún hafði verið að skoða internetið í leyt að upplýsingum og innblæstri um brúðkaupshald þegar upp fyrir henni rann ljós: „Auðvitað græja ég þetta bara og býð þá að auki upp á eigin þjónustu. Þegar ég svo missti vinnuna myndaðist tími og rými til að hrinda þessu í framkvæmd.“ Hún stofnaði því vefinn tofrandibrudkaup.is þar sem hún setur inn praktískar og skemmtilegar upplýsingar fyrir fólk sem er að fara að gifta sig.
Hún mun einnig halda hlaðvarp um brúðkaup: „Í hlaðvarpið fæ ég til mín fagaðila sem munu fræða, gefa góð ráð og segja sögur úr brúðkaupsbransanum og á blogginu verða ýmsar praktískar upplýsingar og sögur frá íslenskum brúðhjónum svo eitthvað sé nefnt.“
Hér fyrir neðan má sjá 10 ráð frá Ásu fyrir verðandi brúðhjón:
- 1.Það er æskilegt (ekki lífsnauðsynlegt þó) að gefa sér að minnsta kosti 6-12 mánuði í undirbúningstíma.
- Búið til kostnaðaráætlun og fylgist með því sem þið eruð að eyða. Þetta safnast fljótt saman.
- Brúðarkjóla og sérhannaðan fatnað þarf oft að panta með að minnsta kosti 6 mánaða fyrirvara, stundum fyrr, til að vera 100% örugg um að fá það sem ykkur langar mest í.
- Nýtið ykkur íslenska þjónustuaðila. Oft er ekkert mikið ódýrara að panta á erlendum síðum þegar öll gjöld eru komin ofan á.
- Kaupið notað eins og hægt er.
- Matur er manns gaman. Matur getur verið allskonar og engin ein leið er rétt, bara hafa nóg af honum og passa að það séu góðir valmöguleikar fyrir vegan fólk.
- Fáið aðstoð! Og ekki gleyma að undirbúa niðurtekt í veislusal ef hún er á ykkar vegum.
- Munið að njóta ferðalagsins. Undirbúningurinn er líka skemmtilegt ferli og stór hluti af þessum tímamótum, verið saman í því ferli og hafið gaman að því.
- Bókið tíma fyrir ykkur saman í spa eða eitthvað dekur í vikunni fyrir brúðkaupið. Andið, njótið og leyfið ykkur að hlakka til.
- Sama hvernig allt fer þá verður þetta töfrandi og ógleymanlegur brúðkaupsdagur, treystið því og þá þarf enginn að fara yfir um.
Áhugasömum má benda á vefsíðuna https://www.tofrandibrudkaup.is/