10 börn smitast af e. coli bakteríunni – níu smituðust í efstadal 2 í bláskógabyggð

Þann 4. júlí síðastliðinn var greint frá því að fjögur börn hafi greinst með alvarlega sýkingu af völdum E. coli bakteríu. Í gær var greint frá því að fimm börn til viðbótar hefðu sýkst en samkvæmt tilkynningu sem birtist á vef Landlæknis í dag hefur eitt barn bæst við. Tilfellin eru því samtals 10.

Börnin sex sem hafa greinst til viðbótar eru á aldrinum 20 mánaða til 12 ára. Þau eru þó ekki alvarlega veik en verða undir eftirliti á Barnaspítala Hringsins næstu daga. Börnin fjögur sem greindust í síðustu viku eru á batavegi.

Níu börn smituðust í Efstadal 2

Í tilkynningunni segir að nú virðist ljóst að níu af börnunum 10 hafi smitast á ferðaþjónustubænum Efstadal 2 í Bláskógabyggð fyrir 10 dögum til þremur vikum síðan. Tíunda barnið smitaðist að öllum líkindum af systkini sínu.

Rannsóknir hafa sýnt að E. coli bakterían sem sýkti börnin finnst einnig í hægðasýni frá kálfum á staðnum. Ekki er vitað með vissu hvernig smitið barst í börnin en frekari rannsóknir á hugsanlegum smitleiðum á staðnum standa enn yfir.

Fram kemur að Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og Matvælastofnun hafi gripið til viðeigandi ráðstafana þann 4. júlí síðastliðinn í góðri samvinnu við staðarhaldara, með það fyrir augum að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu bakteríunnar.

Ekki talið að smit hafi borist með vatni

Ekki er talið að smit barnanna hafi átt sér stað með vatni í Bláskógabyggð og ekkert bendir til að smitið eigi uppruna sinn annars staðar í sveitinni.

Þeim tilmælum er beint til einstaklinga sem heimsóttu ferðaþjónustuna á síðastliðnum tveimur vikum og fengu niðurgang innan 10 daga frá heimsókninni að leita til síns læknis varðandi nánari greiningu. Einkennalausir einstaklingar sem heimsótt hafa Efstadal 2 þurfa ekki að leita læknis né heldur einstaklingar sem fengið hafa niðurgang sem nú er genginn yfir.