1 milljón barna þarf neyðarhjálp

Rauði kross Íslands hóf um helgina söfnun vegna jarðskjálftanna í Nepal, en forsvarsmenn hans hafa þar að auki boðið fram faglega neyðaraðstoð sérfræðinga í rústabjörgun. Enn hefur ekki fengist svar við því hvort sú hjálp verður þegin. Þá hefur ríkisstjórn ákveðið að verja 10 milljónum króna til að styrkja Alþjóðasamband landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans.


Jarðskjálftinn reið yfir að morgni laugardags og snarpur eftirskjálfti kom í kjölfarið. Mörg þorp sópuðust niður hlíðar í fjalllendi landsins og höfuðborgin Katmandú er afar illa farin. Óttast er að mörg þúsund manns hafi farist í skjálftunum, en nú þegar hafa fundist tæplega 3000 lík. Eftirlifendur hafast margir hverjir við úti undir beru lofti og þurfa sárlega á neyðaraðstoð að halda, ekki síst börn og ugnmenni en talið er að ein milljón barna sé hjálparþurfi í landinu.


Íslensku Everestfararnir Ingólfur Geir Axelsson og Vilborg Arna Gissurardóttir eru óhult í grunnbúðum fjallsins, en þrír úr hópi Ingólfs fórust í flóðum sem fylgdu á eftir skjálftunum. Fjögur íslensk ungmenni sem voru á ferðalagi í Nepal eru einnig heil á húfi.