\"Ég labbaði upp að samfélagsvini mínum um daginn og spurði hvað hann héldi um hugsanlega forsetaframbjóðendur. Viðkomandi var rétt rúmlega tvítugur og sagðist aldrei hafa spáð í það enda væri hér á landi ekki hefði fyrir því að skipta um forseta þótt vissulega þyrfti að kjósa hann á fjögurra ára fresti.\"
Svona skrifar Tryggvi Harðarson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is sem fjallar um forsetakosningarnar eftir sjö mánuði. Þessum vini hans var nokk sama, \"sagði líka að forsetinn á undan Óla væri jafn fjarlægur sér í tíma og Sveinn Björnsson,\" skrifar Tryggvi áfram.
Og hann veltir væntanlegum kosningum fyrir sér: \"Það er ótrúlega mikil taktík og miklar hefðir í kringum allt í forsetakosningum. Það er engin tilviljun, og skýrist af sísetu núverandi forseta en um leið sterkri stöðu hans því fólk vill bíða þangað til hann tilkynnir það í sérstöku ávarpi til þjóðarinnar 1. janúar fjórða hvert ár að hann ætli fram aftur. Þar fer hann yfirleitt í gegnum þá óvissu sem ríkir á hverjum tíma og það hve ótrúlega fórnfúst starf hann sé að færa af hendi með því að standa vörð fyrir mig og þig aftur og aftur. Hann vinnur svo auðvitað alltaf enda er fólk mjög þakklátt fyrir að svo vandaður maður nenni þessu endalaust.\"
Svo nefnir hann væntanlega mótframbjóðendur: \"Fyrst kemur einhver sterkur, svo kemur einhver aðeins óvinsælli, loks einhver í flippi og að endingu Ástþór Magnússon. Allir þessir aðilar nema Ástþór skipta svo bróðurleg með sér meirihluta atkvæða til þess að gamli ómissandi sísetu forsetinn fái að halda áfram að túlka það hvað okkur finnst út á við og tryggja að ég og þú getum verið örugg í þeirri óvissu sem ríkir á hverjum tíma,\" skrifar Tryggvi sem býst við því að Ólafur nokkur Ragnar eigi eftir að tala þannig um næstu áramót að jafnvel stjórnmálaprófessorar muni ekki skilja hann og þjóðin muni ræða það á kaffistofum næstu vikurnar á eftir hvað hann hefði sagt.
Kunnuglegt? Ó,já.