Vilhjálmur reiður: sjálfstæðismenn hækkuðu laun sín um 30% - „hafi þessir aðilar skömm fyrir!“

„Ég bara velti því fyrir mér hvaða siðrof og siðleysi hefur átt sér stað hjá bæjarstjórn Grindavíkur með því að voga sér að hækka laun sín frá 18% til 30% á einu bretti og um leið ógna lífskjarasamningum gróflega með þessu ótrúlega framferði sínu.“

Þetta segir Vilhjálmur Birgisson en hann gagnrýnir harðlega þá ákvörðun bæjarstjórna Grindavíkur að hækka laun bæjarfulltrúa um 18 til 30 prósent. Slíkt hið sama gerir Verkalýðsfélag Grindavíkur en í tilkynningu þaðan segir að samið hafi verið á almennum markaði í apríl um að allir ættu að fá sömu launahækkanir til þess að hækka þá launalægstu hlutfallslega mest í launum.  Bæjarstjórn Grindavíkur hafi með þessu tekið lífskjarasamninginn í Grindavík úr sambandi. Í tilkynningu á vef verkalýðsfélagsins segir:

„Þetta gerir bæjarstjórn Grindavíkur á sama tíma og félagsmenn Verkalýðsfélags Grindavíkur sem starfa hjá sveitarfélaginu hafa verið samningslausir í rétt tæplega 250 daga.“

Þá segir Vilhjálmur Birgisson: „Lífskjarasamningurinn hefur nú þegar skilað þessu markmiði sem og því að verðbólgan hefur farið hratt lækkandi og nemur einungis 2,7% og þessu til viðbótar hefur lífskjarasamningurinn stutt við að stýrivextirnir hafa lækkað um 1,5% frá undirritun og hafa ekki verið lægri um margra ára skeið.“

Vilhjálmur heldur áfram:

„Nei, bæjarstjórn Grindavíkur sem saman stendur af fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Samfylkingar gefur skít í íslenska verkalýðshreyfingu sem lagði gríðarlega mikið á sig til að ná þessum árangri með undirritun lífskjarasamningsins.

Nei, kjörnir fulltrúar Grindavíkur ætla ekkert að taka einhverjar krónutöluhækkanir heldur vilja þeir fá „leiðréttingu“ á launum sínum og það sem nemur frá 18 til 30% , en með þessu framferði eru fulltrúar þessara flokka nánast að sturta lífskjarasamningum niður í holræsið.“

Að hugsa sér að á sama tíma og þessar launahækkanir eru afgreiddar eins og ekkert sé eðlilegra eru tekjulægstu starfsmenn Grindavíkur og reyndar allra sveitarfélaga búnir að vera samningslausir í 250 daga. Hvað siðrof og siðleysi er þarna í gangi?“

Þá vill Vilhjálmur að bæjarfulltrúar dragi launahækkunina til baka. Hann segir að lokum:

„Hafi þessir aðilar skömm fyrir!“