Nærri 9 af hverjum tíu Íslendingum, eða 87%, tjáðu ánægju með veðrið í sumar. Alls kváðust 64% mjög ánægð með veðrið í sumar en 23% frekar ánægð. Ánægjan með sumarveðrið reyndist sú þriðja hæsta yfir síðastliðinn áratug, á eftir mælingum áranna 2016 og 2010. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.
Sumarblíðan lagðist sérstaklega vel í íbúa af suðurhluta landsins en 95% Reykjavíkurbúa, 94% þeirra úr nágrenni Reykjavíkur og 93% íbúa Suðurlands kváðust frekar eða mjög ánægð með veðrið í sumar. Minnstrar ánægju gætti þó á meðal íbúa á Norðaustur- og Austurlandi, en einungis 36% þeirra kváðust frekar eða mjög ánægð með veðrið í sumar.
Fólk á aldrinum 18-29 ára var líklegast til að segjast ánægðir með veðrið í sumar, eða um 90%. Ánægjan minnkaði lítillega með auknum aldri en 84% svarenda 50 ára og eldri kváðust frekar eða mjög ánægðir með sumarveðrið.