Þóra Kristín Ásgeirsdóttir líkir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur við Hannes Hólmstein Gissurarson í pistli sem birtur er í Stundinni sem kom út í dag. Þá segir Þóra Kristín að enginn munur sé á stjórnarháttum eða skoðunum Áslaugar og Sigríðar Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra. Þá spyr hún hvort að „forréttindakarlarnir séu enn þá við stjórnvölinn.
Árið er 2009
Það er 20. janúar og árið er 2009. Helga Vala Helgadóttir, þá fjölmiðlamaður, nú þingmaður Samfylkingarinnar að fimmtán unglingar hafi legið handjárnaðir í Alþingisgarðinum meðan „veruleikafirrtir þingmenn hafi verið inni að tala um hvort það ætti að selja brennivín í búðum“. Það var rétt hjá henni.
Tíu árum síðar
Og svo líður tíminn. Það er 6. september 2019. Tilkynnt er að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 28 ára þingkona Sjálfstæðisflokksins, verði næsti dómsmálaráðherra. Þóra Kristín segir:
„Stjórnarandstaðan fagnar þessum tíðindum ákaflega, utanríkismálanefnd er stödd erlendis þegar tilkynnt er um skipanina og fer fögrum orðum um formann nefndarinnar, hinn nýja ráðherra, enda varð ung kona fyrir valinu, fersk, sjálfstæð og einörð,“ segir Þóra Kristín en í hópi þeirra sem óskuðu Áslaugu hjartanlega til hamingju var Helga Vala Helgadóttir, nú mannréttindalögfræðingur og þingmaður. Þóra Kristín heldur áfram: „Helga Vala hafði líka gagnrýnt Sigríði Á. Andersen harðlega fyrir meðferð flóttamanna og harðneskju Útlendingastofnunar. Sú hlýtur að bíta sig í tunguna í dag.“
Hent úr landi á sama tíma og allt á að vera í mannúðlegum farvegi
Þóra Kristín segir að nýi ráðherrann hafi ekki haft lyklana að ráðuneytinu lengi, þegar hún lýsti því yfir að málefni flóttamanna og hælisleitenda væru í góðum og mannúðlegum farvegi. Þóra Kristín bendir á að „um sama leyti var ungur maður borinn úr landi eftir 17 daga hungurverkfall og settur í alræmdar flóttamannabúðir þar sem læknisþjónusta er af skornum skammti.“
Þá segir Þóra Kristín:
„Þetta var strax farið að hljóma eins og Hannes Hólmsteinn gengi laus í dómsmálaráðuneytinu með fallegan ljóshærðan dúkkuhaus.“
En slíkt má ekki segja upphátt. Þóra Kristín segir að konur eigi auðvitað að vera glaðar að stjórnmálakonur fái góð embætti. „Og þær eiga að hrósa gömlu stjórnmálakörlunum fyrir að hleypa þeim upp á dekk.“
Þá segir Þóra Kristín á öðrum stað:
„Ef Sjálfstæðisflokknum finnst mikilvægt að reka harðneskjulega flóttamannastefnu og brjóta lög við skipan ráðherra, af hverju er ekki Sigríður Á. Andersen áfram talsmaður þessara sjónarmiða? [...] Og ef ungir og ferskir kvenkyns ráðherrar hafa ekkert fram að færa nema gömul og úrelt stefnumál forréttindakarla, af hverju eru ekki bara forréttindakarlarnir áfram við stjórnvölinn?“ segir Þóra Kristín og spyr að lokum: „Eða eru þeir það?“
Pistilinn í heild má lesa í blaði Stundarinnar sem kom út í dag.