Helltu sér yfir sigmund davíð á rúv: krakkaskítur sem sigurjón hefði lagt í einelti: þeir sem kjósa flokkinn eru ómenntaðir, tannlausir, trúa á jesú og búa á suðurlandi

Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri og Sigurjón Kjartansson leikari og handritshöfundur fjölluðu um stjórnmál í þætti sínum, Tvíhöfða, á Rás 2 í gærkvöldi. Þar beindu þeir helst spjótum sínum að Miðflokknum og Sigmundi Davíð. Sigurjón sagði Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins ,vera krakkaskít úr Garðabænum sem hann hefði lagt í einelti hefði hann fengið tækifæri til þess. Þá létu kjósendur Miðflokksins plata sig og þeir væru flestir búsettir á Suðurlandi sem væri eins og biblíubelti og kjósendurnir tannlausir, tyggjandi skro, væru á móti innflytjendum en trúðu á Jesú.

Jón Gnarr og Sigurjón tóku alla flokka fyrir. Var Jón hrifnastur af Framsóknarflokknum og sagðist geta hugsað sér að kjósa hann. Þá sneru þeir sér að Miðflokknum. Þeir sögðu að samkvæmt könnunum á kjósendum að þá væru þeir sem kysu Miðflokkinn eldra fólk, ómenntað, sem byggi á Suðurlandi. Sigurjón sagði:

„Alltaf þegar ég keyri yfir Hellisheiðina og er að koma niður hjá Kömbunum, þá veit ég að ég er að keyra inn í eitthvað biblíubelti. Eins og Danir líta á Jótland. Það er verið að tyggja skro og menn eru tannlausir og menn trúa á Jesú, og eru yfirleitt ekki glaðir með innflytjendur. Og eiga pallbíl.“

Þá sagði Jón Gnarr á öðrum stað í þættinum: „Miðflokkurinn, Sigmundur Davíð, hann er alltaf að gefa sig út fyrir að vera íslenskur bóndakall, en hann er bara gæi úr Garðabæ.

Sigurjón: „Hann er náttúrulega bara krakkaskítur úr Garðabæ. Hann er fæddur 1975. Þetta er fáránlegt.“

Jón Gnarr: Hann er eldklár.

Þá skaut Sigurjón inn í: „Maður hefði gjörsamlega, ég hefði lagt hann í einelti.“

Jón Gnarr sagði síðar í þættinum að Sigurður Ingi væri maðurinn sem Sigmundur Davíð væri að reyna þykjast vera.

Sigurjón bætti við að kjósendur Miðflokksins ættu margt sameiginlegt með kjósendum Trump og létu þingmenn flokksins plata sig og Sigmundur Davíð væri ekki einn af þeim.

Það má því segja að lokaniðurstaða Jóns Gnarr og Sigurjón Kjartansson um kjósendur Miðflokksins sé eftirfarandi:

Þeir eru ómenntaðir banjospilarar, eldra fólk, tannlausir og tyggja skro, búa á Suðurlandi, eiga Costcokort, á móti innflytjendum en trúa á Jesú og foringi þeirra er krakkaskítur sem Sigurjón hefði lagt í einelti hefði hann gengið í sama skóla.