Síminn krefur sýn um rúmlega hálfan milljarð

Síminn hf. birti í dag stefnu á hendur Sýn hf. þar sem Síminn gerir kröfu um greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem félagið telur sig hafa orðið fyrir „vegna meintrar ólögmætrar hagnýtingar Sýnar hf. á sjónvarpsefni Símans hf. frá 1. október 2015 til 16. desember 2015.“ Síminn krefst rúmlega 565 milljóna króna í skaðabætur og miskabætur. Vísir.is greinir frá. 

Í tilkynningu frá Sýn er greint frá því að krafa Símans sé tvíþætt. Síminn fer fram á að Sýn verði dæmt til að greiða rúmlega 555 milljón króna skaðabætur og einnig miskabætur sem nema 10 milljónum króna, auk vaxta og dráttarvaxta. Þá krefst Síminn greiðslu málskostnaðar.

„Sýn hf. telur engan grundvöll vera fyrir þeim fjárkröfum sem Síminn hf. hefur sett fram á hendur félaginu. Mun félagið því grípa til varna í dómsmálinu og krefjast sýknu,“ segir í tilkynningunni.

Krafan er sett fram í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 18. október 2017, þar sem lögbann sem sýslumaður hafði lagt við því að Sýn hf. tæki upp og miðlaði sjónvarpsefni sjónvarpsstöðva Símans hf. var staðfest.