Segja nauðsynlegt að grípa til aðgerða vegna skyndilána

Umsækjendur sem óskuðu aðstoðar Umboðsmanns skuldara vegna fjárhagsvanda fjölgaði um 6,5 prósent á árinu 2018 miðað við árið á undan. Einstaklingar sem leita sér aðstoðar eiga það sameiginlegt að hafa tekið fjölda skyndilána á stuttum tíma og komið sér í töluverðar skuldir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fréttatilkynningu frá UMS.

Alls bárust 1.397 umsóknir til embættisins 2018 á móti 1.311 umsóknum árið 2017. Mest fjölgaði umsækjendum sem voru á aldrinum 18-29 ára, úr 23 prósent árið 2017 í 27,3 prósent árið 2018.

Markaðssetning skyndilána er öflug og áberandi og er beint í miklum mæli að yngri kynslóðinni með áherslu á auðvelt aðgengi. Að mati UMS er mikilvægt að kannað verði hvort hægt sé að setja skorður við því hvernig þessi þjónusta er markaðssett. UMS bendir á að í Noregi hafa t.d. verið settar strangar reglur um hvernig auglýsa megi þjónustu sem þessa.

Einfalt að sækja um og skjót afgreiðsla

UMS skilgreinir skyndilán sem lán sem tekin eru á vefsíðum eða með smáforritum í gegnum farsíma. Lánin eiga það sameiginlegt að einfalt er að sækja um þau og þau eru afgreidd afar skjótt.

Bæði getur verið um að ræða lán sem tekið er samhliða kaupum á vöru eða þjónustu en einnig lán þar sem ákveðin fjárhæð er lögð inn á reikning lántaka. Á árinu 2018 var hlutfall skyndilána 22 prósent af heildar fjárskuldbindingu þessara einstaklinga og segir UMS það verulegt áhyggjuefni að enn skuli fjölga í hópi umsækjenda á aldrinum 18-29 ára.

Leggja til miðlægan skuldagrunn

UMS segir það ljóst að einstaklingar geti auðveldlega tekið mörg lán á stuttum tíma hjá ólíkum þjónustuaðilum og þannig skuldsett sig langt umfram greiðslugetu.

UMS leggur því til skráningu á skuldastöðu einstaklinga. Með slíkri skráningu væri hægt að koma í veg fyrir að sami einstaklingur taki mörg lán hjá ólíkum aðilum með ofangreindum afleiðingum. Með aðgangi að slíkri miðlægri skrá gætu þeir sem veita skyndilán betur metið lánshæfi umsækjenda eins og kveðið er á um í lögum um neytendalán. Slík skráning myndi auk þessi veita yfirsýn yfir umfang útlána af þessu tagi sem ekki er fyrir hendi í dag.