Samtök iðnaðarins mótmæla sykurskattinum: fráleitt að taka aftur upp vörugjöld á matvæli

Samtök iðnaðarins mótmæla tillögum Embættis landlæknis að auka skattheimtu á sykraða og ósykraða gosdrykki auk sælgætis til að draga úr sykurneyslu landsmanna.

Samtökin segja að tillögurnar byggi á könnun sem gerð var á mataræði Íslendinga fyrir rúmum áratug síðan. Halda samtökin því fram að margt hafi breyst í mataræði landsmanna á þeim tíma sem liðinn er frá þeirri könnun. Markaðshlutdeild sykraðra gosdrykkja hefur stórlega dregist saman á síðustu árum um leið og markaðshlutdeild sykurlausra drykkja og vatns hefur aukist. Benda samtökin á að þessi þróun sé einungis hluti af miklum breytingum á lífsháttum og matarvenjum landsmanna. Neytendur hafa í miklum mæli snúið sér að hollari valkosti. Vilja því samtökin að kannað verði að nýju hvernig matarvenjum landsmanna er háttað.

Samtökin telja að sérstök skattlagning einstakra vöruflokka feli í sér mismunun og skerði samkeppnisstöðu þeirrar greinar sem í hlut á. Samtök iðnaðarins segja það fráleitt að taka aftur upp vörugjöld á matvæli með tilheyrandi kostnaði. Segja samtökin að ekki aðeins hækki verð þeirra vara sem fyrir því verða heldur eykur það kostnað við kerfið sem slíkt sem á endanum kemur niður á samkeppnishæfni fyrirtækja og auki kostnað neytenda og hins opinbera.