Samtök iðnaðarins hvetja stjórnvöld að tryggja eftirlit með ófaglærðum iðnaðarmönnum - hafa ítrekað kært brot til lögreglu

Í tilkynningu sem Samtök iðnaðarins sendu frá sér í dag telja samtökin að eftirfylgni opinberra aðila með iðnaðarlögunum hefur verið með öllu óásættanleg undanfarin ár. Segja þau að ekkert opinbert eftirlit hefur verið til staðar í þeim tilgangi að hlúa að löggiltum iðngreinum hér á landi og að það hafi sýnt sig að engin úrræði séu til staðar til að stöðva ólögmæta starfsemi ófaglærðra í löggiltum iðngreinum. Eingöngu einstaklingar sem hlotið löggildingu í sínu fagi mega sinna því í iðnaði samkvæmt iðnararlögum.

Samtök iðnaðarins segja að iðnarlögin hafi það markmið að tryggja vernd neytenda og gæði þjónustu. Telja samtökin að það sé ekkert virkt opinbert eftirlit og þurfi samtökin sjálf ítrekað að kæra ófaglærða aðila til lögreglu.

„Iðnaðarlögin sem taka meðal annars til löggiltra iðngreina á sviði byggingariðnaðar, framleiðslu, matvæla- og þjónustugreina hafa ekki síst það markmið að tryggja vernd neytenda og gæði þjónustu. Enda eru lögin til þess fallin að tryggja neytendum vissu fyrir því að þeir einstaklingar sem starfa á sviði lögverndaðra iðngreina hafi öðlast tilskilda menntun og hæfni til verksins. Þar sem virkt opinbert eftirlit er ekki til staðar hafa Samtök iðnaðarins ítrekað þurft að kæra ófaglærða aðila sem gengið hafa inn á svið löggiltra iðngreina til lögreglu en málin hafa gengið hægt og niðurstöður engar.“

Þá segja samtökin að þau hafi einnig ítrekað kvartað til neytendastofu og hvetja stjórnvöld til að tryggja eftirlit með iðnarlögum.

 

„Þá hefur ítrekað verið kvartað til Neytendastofu sem ekki hefur séð ástæðu til að taka undir þau sjónarmið sem lögunum er ætlað að gæta að og hafa ákveðið að grípa ekki til aðgerða. Samtök iðnaðarins hvetja stjórnvöld til að tryggja skilvirkt eftirlit með iðnaðarlögum og standa vörð um þá hagsmuni sem iðnaðarlögin eiga að tryggja.“