Ólafur: „þú ert leiðinleg“

„Í sumar var málað rautt hjarta og „elskið“ á skúr sem stendur við ljótasta bílaplan Reykjavíkur. Þessi skúr er í eigu Orkuveitunnar. Í síðustu viku var búið að háþrýstisprauta myndina af.“

Þetta segir leikarinn og leikstjórinn Ólafur Egilsson og birtir mynd af hjartanu og hinum fallegu skilaboðum og svo hvernig hann lítur út núna. Ólafur segir:

„Þessi skúr hefur verið útkrotaður og óhirtur af orkuveitunni a.m.k. síðustu fimm ár.

Það er alltaf krotað á þennan skúr. Er ekki skárra að hafa hjarta og jákvæð skilaboð heldur en eitthvað spreyfruss.

Bara þessi hluti veggjarins var sprautaður. Ekki hinar útkrotuðu hliðarnar.

Kæra Orkuveita. Þú ert leiðinleg.“

\"\"

\"\"