Lögreglan lokar hluta af þjóðveginum vegna alvarlegs umferðarslyss - gangandi vegfarandi varð fyrir bíl

Lögregla og sjúkraflutningamenn eru nú við vinnu á vettvangi alvarlegs umferðarslyss á Þjóðvegi 1 skammt frá bænum Viðborðsseli í Sveitarfélaginu Hornafirði. Þar varð gangandi vegfarandi fyrir bifreið. Slysið var tilkynnt til neyðarlínu um kl. 17:30 og er vegurinn nú lokaður allri umferð en unnt verður að hleypa henni fram hjá vettvangi með umferðarstjórnun mjög fljótlega. Lögreglan segir að rannsóknin á slysinu muni taka töluverðan tíma og má því búast við umferðartöfum á vettvangi fram eftir kvöldi.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa er á leið á vettvang ásamt tæknideildarmönnum Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins til vinnu við vettvangsrannsókn. Lögreglan segist ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.