Iceland er dýrasta matvöruverslunin samkvæmt könnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var þriðjudaginn 19. nóvember. Lítill munur er á verði hjá þeim matvöruverslunum sem eru á netinu en Boxid.is er aðeins dýrara en Heimkaup.is á meðan Netto.is er ódýrasta matvöruverlsunin á netinu. Iceland var oftast með hæstu verðin, í 52 tilvikum af 102, Kjörbúðin næst oftast, í 19 tilvikum og Hagkaup í 17 tilvikum. Bónus var lang oftast með lægstu verðin eða í 68 tilvikum af 102. Í mörgum tilfellum var mikill verðmunur í könnuninni en algengasti verðmunurinn var 20-40% eða í 45 tilvikum af 102. Í 19 tilfellum var verðmunurinn 40-60% og í 13 tilvikum var verðmunurinn 60-80%.
Af hefðbundnum verslunum er Bónus ódýrust en Iceland dýrust Bónus er ódýrasta verslunin samkvæmt könnuninni með lægstu verðin í 52 tilvikum af 102 en í öðrum tilvikum dreifðust lægstu verðin yfir margar verslanir. Næst ódýrasta búðin er Krónan en á eftir henni koma Nettó og Netto.is ef horft er á heildarverðlag í verslununum. Lengra er þó á milli Krónunnar og Nettó í verðlagi en Krónunnar og Bónus.
Á eftir Nettó búðunum koma Fjarðarkaup og síðan Heimkaup.is en þær verslanir eru með svipað verðalag. Boxid.is og Super 1 koma þar á eftir með lítið eitt hærra verðlag en í Fjarðarkaupum. Á dýrari endanum er Iceland sem er dýrasta búðin og oftast með hæstu verðin og Hagkaup þar á eftir sem er þó töluvert frá Iceland í verði. Kjörbúðin kemur þar á eftir og er litlu ódýrari en Hagkaup og í reynd oftar með hæstu verðin eða í 19 tilfellum af 102 en Hagkaup í 17 tilfellum.
Mikill munur var á hæsta og lægsta verði í könnuninni en í 42 tilvikum af 102 var 20-40% verðmunur en í 42 tilvikum var verðmunurinn yfir 40%. Sem dæmi má taka 57% verðmun á hangikjötssalati frá Sóma sem var dýrast í Iceland á 559 kr. en ódýrast í Bónus, 357 kr. Þá var 54% munur á lægsta og hæsta kílóverði af ýsuflökum, lægst var kílóverðið í Bónus 1.198 kr. en hæst á Netto.is 1.850 kr. kg. Mesti verðmunur á Stjörnu partý mix snakkpoka var 73% en dýrastur var hann á 599 kr. í Kjörbúðinni en ódýrastur á 347 kr. í Super 1. Þá var mikill verðmunur á drykkjarvörum en af drykkjarvörum var mestur verðmunur á bláum Powerade, 155%. Lægsta verðið mátti finna í Bónus, 129 kr. en það hæsta, 329 kr. í Iceland.
Sendingargjald bætist við pantanir hjá netverslunum og hækkar verð Aukinn kostnaður getur fylgt því að kaupa mat hjá netverslunum þegar þær peningaupphæðir sem verslað er fyrir eru ekki háar. Í töflunni hér að neðan má sjá hvernig heimsendingarkostnaður leggst á pantanir frá netverslununum. Lægsti heimsendingarkostnaðurinn er hjá Heimkaup.is en þar leggst enginn sendingarkostnaður á pantanir yfir 9.000 kr. en hæsti sendingarkostnaðurinn er hjá Netto.is þar sem versla þarf fyrir 15.000 kr. eða meira til að losna við sendingarkostnað.