Kýldi og sparkaði í konu í austurborginni í morgun

Klukkan rúmlega níu í morgun fékk lögreglan tilkynningu um aðila sem veittist að konu í austurborginni. Mun hann hafa kýlt og sparkað í hana en ekki er vitað hvað honum gekk til með árásinni. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni.

Fimm bíla árekstur var tilkynnt á Reykjanesbraut í morgun. Um minniháttar árekstur var að ræða og urðu engin meiðsl á fólki.

Þá hefur lögreglan fengið nokkrar tilkynningar um innbrot í morgun víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu en lögreglan hafði einnig nóg að gera í nótt vegna innbrota og þjófnaða.