Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sagðist einfaldlega ætla að vinna sína vinnu með sama hætti og áður þegra Halldóra Mogenssen, þingmaður Pírata spurði hann hver viðbrögð hans væru við mótmælunum á Austurvelli á laugardaginn.
Þessu greinir mbl.is frá en á mótmælunum var meðal annars krafist afsagnar Kristjáns Þórs.
„Sinna mínu pólitíska starfi sem og embættisskyldum í ráðuneytinu með nákvæmlega sama hætti og af bestu samvisku, gæta að hæfi, hvort heldur er um að ræða sérstök mál eða annað því um líkt, og leggja mig einfaldlega fram um að sinna þeim verkum sem mér hefur verið treyst og trúað fyrir,“ sagði Kristján.
Halldóra spurði Kristján þá hvort hann upplifði traust í kjölfar mótmælanna og hvað þyrfti til þess að hann segði af sér.
„Ég finn bæði fyrir trausti og vantrausti eins og við stjórnmálamenn gerum iðulega í okkar störfum. Þau eru umdeild og við því er ekkert að segja. Við leggjum verk okkar í dóm kjósenda, oftast nær á fjögurra ára fresti. Ég treysti mér fyllilega til að standa undir því trausti sem mér hefur verið sýnt til að gegna störfum fyrir Norðausturkjördæmi en um leið taka þátt í störfum Alþingis fyrir alla landsmenn,“ sagði Kristján og bætti við að hann ætlaði að vona að störf stjórnmálamanna á Íslandi yrðu aldrei á þann veg að þeir yrðu ekki umdeildir.
Einnig sagðst Kristjáni þykja vænt um ef Halldóra gæti upplýst hann um þær „undratölur“ sem hún virtist hafa um það hversu marga einstaklinga það þyrfti sem mælikvarða um traust á störfum þingmanna.