Hvað gerir að vigdís hyggst hætta?

Vigdís Hauksdóttir verður gestur í Þjóðbraut, sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld, en sem kunnugt er hyggst Vigdísi ekki sækjast eftir sæti á framboðslista hjá Framsóknarflokki í komandi kosningum.

Fáir þingmenn hafa sett eins mikinn svip á stjórnmálin og umræðuna á liðnum árum og Vigdís hefur gert. Eflaust kemur ákvörðun hennar mörgum á óvart.

„Síðasta stóra verkefnið mitt áður en ég læt af þingmennsku er að leiða fram staðreyndir um afhendingu tveggja stóru bankanna til kröfuhafanna og upplýsa um vinnubrögð kringum Landsbankann og Icesave. Öll gögn liggja nú fyrir og verður upplýst um þessi mál í sumarlok.,“ segir Vigdís meðal annars á Facebook.