„Það voru fjórir lögreglumenn sem fylgdu mér alla leið til Grikklands. Svo var mér bara hent úr flugvélinni og ég þurfti að sjá um mig sjálfan. Ég var kominn með atvinnutilboð á Íslandi en hérna er enga vinnu að finna.“
Þetta segir Milad Wskt, en honum var vísað úr landi í sumar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Milad Útlendingastofnun hefur afgreitt 816 beiðnir um hæli það sem er liðið af árinu 2019. Af þessum 816 beiðnum voru 216 beiðnir samþykktar. Alls hafa 55 börn fengið hæli hér á landi þar sem liðið er af árinu, en 156 börnum var neitað um hæli hér á landi.
Blaðamaður og tökumenn Hringbrautar hittu á Milad í Aþenu í ágúst þar sem hann sýndi okkur þær aðstæður sem flóttamenn þar í landi búa við. Farið var í Elenos flóttamannabúðirnar, en það er í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá miðbæ Aþenu. Búðirnar eru staðsettar i iðnaðarhverfi. Margar byggingarnar í kringum búðirnar eru auðar og eru þær heimili margra flóttamanna.
Hringbraut ræddi við flóttafólk fyrir utan flóttamannabúðirnar, en blaðamanni Hringbrautar var neitað aðgangur að búðunum sjálfum. Búðirnar eru hannaðar fyrir rúmlega 600 manns en í búðunum sjálfum búa þó um 1.500 manns. Um helmingur flóttamanna í búðunum eru börn.
Hér að neðan má sjá fréttaskýringu um málið.