Helga vala segir áslaugu bera ábyrgð á ómannúðlegum aðferðum flóttamanna

Helga Vala Helgadóttir segir að stjórnvöld hérlendis beiti ómannúðlegum aðferðum í skjóli Dyflinnarreglugerðarinnar og brjóti á lagaskyldum í garð flóttafólks.

Í Morgunblaðinu í dag skrifar Helga Vala, þingmaður Samfylkingarinnar, að dæmin sanni að mannúð ráði ekki í för í málefnum flóttafólks eins og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra hefur áður sagt.

„Íslensk stjórnvöld mega beita þessari ómannúðlegu meðferð í skjóli ofangreindrar reglugerðar en þau eiga líka samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum sem við erum aðilar að að gæta að einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Einstaklingar sem glíma við fatlanir, veikindi, þungaðar konur, einstæðir foreldrar með ung börn og fleiri eiga að vera flokkaðir í þennan hóp fólks í sérstaklega viðkvæmri stöðu,“ Segir Helga Vala í pistli sínum.

Þá segir Helga Vala að samkvæmt hennar mati og margra annara séu íslensk stjórnvöld líka að vera að brjóta á hagsmunum barna með því að senda þau í flóttamannabúðir í Grikklandi.

„Þar er ekki sett skýlaus krafa um endursendingu til annarra aðildarríkja Dyflinnarreglugerðar. Þvert á móti er ríkjum veitt ótvíræð heimild til að meta sjálfstætt hvert og eitt tilvik með tilliti til mannúðar, enda er það frumskylda hvers ríkis. Endursendingarákvæðið er til að tryggja að móttökuríki sé skuldbundið til að taka á móti flóttafólki sem ríkið hefur „hleypt inn“ á svæðið.“

Segir Helga Vala endursendingarákvæðið vera til þess að fólk lendi ekki í tómarúmi á milli ríkja. Það komi ekki á nokkurn hátt í veg fyrir að ríki sýni mannúð í verki.

Helga Vala segir að í skjóli Dyflingarreglugerðarinnar komi stjórnvöldin sér markvisst undan því að þurfa að veita flóttamönnum vernd hér á landi. Þau sendi lítil börn út í óvissu og hættu til frambúðar til þess eins að þurfa ekki að veita þeim vernd hér.

„Senda þau inn í flóttamannabúðir, ef þau eru svo „heppin“ að fá þar inni, ellegar á götuna þar í landi með börn sín. Enga vernd er þar að fá.“

Helga Vala segir Áslaugu hafa farið með rangt mál við upphaf embættissetu sinnar og að Ísland framfylgi ekki mannúðlegri stefnu í málefni flóttafólks.

„Ofangreind dæmi sýna annað og þar berð þú nú ábyrgð.“