Guðlaugur var gagnrýndur fyrir að vera grófur: „ef við hefðum ekki tapað 13-0 væri þetta mjög góð saga!“

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld. Þar fer hann um víðan völl í einlægu viðtali. Guðlaugur ræðir í fyrsta sinn á opinberum vettvangi um þá staðreynd að hann er ættleiddur og vitanlega er einnig rætt um pólitík.

Aðeins er farið yfir íþróttaferilinn líka en Guðlaugur er Skallagrímsmaður með meiru og þótti sérstakur íþróttamaður.Guðlaugur Þór segir:

„Ég fékk mikla gagnrýni fyrir að vera grófur, en sem betur fer hlustaði ég ekki á það, því þá hefði ég hætt á fyrsta degi. Ég man að Ari Sigvaldason, fréttamaður og vinur minn, það var eitt hús á milli okkar, hann kenndi mér fótbolta. Eftir svona hálftíma heimtaði hann að ég myndi fara, ekki bara af vellinum, heldur út úr garðinum.“

Aðspurður um hvort hann hafi verið svona grófur segir Guðlaugur: „Ég hef heyrt þessa gagnrýni, ég tek ekki mark á henni. Gísli Einarsson er eitthvað að rifja þetta upp í einhverju blaði núna, hann hringdi í mig og við vorum að fara yfir það að þó að ég eigi kannski stærri hápunkt heldur en hann þá eigum við það sameiginlegt að margir muna ferilinn okkar þó hann hafi kannski ekki verið sérstaklega farsæll.“

Hann nefnir kostulegt dæmi: „Það sem stendur upp úr og menn tala um ennþá er þegar ég var í meistaraflokki Skallagríms og þetta gat nú eiginlega ekki verið snúnara. Ég er í Menntaskólanum á Akureyri, þetta er 1986, þetta er sumarið fyrir útskriftina. Ég spilaði á Akureyrarvelli og við erum að spila á móti KA. Þó ég segi sjálfur frá þá skoraði ég ekki bara glæsilegasta mark vallarins í leiknum, heldur þetta sumarið. Ég var fyrir utan teig, skrúfaði upp í skeytin, markmaðurinn átti ekki séns… og ef við hefðum ekki tapað 13-0 þá væri þetta bara mjög góð saga!“

Sigmundur Ernir skellir upp úr og spyr hvort að þetta hafi sem sagt verið sjálfsmark.

„Já það var mjög mikið sjálfsmark. Ég hitti dómarann á Sjallanum um kvöldið og hann var búinn að dæma hundruð leikja og hann var nú ekki alveg edrú en hann hafði bara aldrei séð jafn fallegt mark. Þetta var árshátíðin og átta kennararnir mínir sátu saman. Ég man bara að menn þögnuðu ekkert í stúkunni, menn hlógu svo mikið.“

Mannamál er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:00 í kvöld.