Rólegt var á næturvaktinni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynnt var um eitt innbrot í ökutæki í miðborginni en bifreiðin var staðsett í bílastæðahúsi. Lögregla fann stuttu síðar alla þá muni sem stolið hafði verið í nágrenni við brotavettvanginn.
Nokkuð hefur verið tilkynnt til lögreglu um grunsamlegar mannaferðir í nótt. Lögreglan hvetur íbúa höfuðborgarsvæðisins að gæta vel að eignum sínum og gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir tjón vegna þjófnaðar.