Grétar einarsson er látinn: „hvíldu í friði grétar“

Grétar Einarsson féll frá 16. september eftir erfiða en stutta baráttu við alvarleg veikindi. Grétar var goðsögn hjá Víði Garði. Á síðu félagsins eru rituð minningarorð um þennan mikla knattspyrnukappa.

Grétar hóf ferilinn með Víði og var hluti af gullaldarliði Víðis sem spilaði í efstu deild árin 1985 til 1987 og svo árið 1991. Þá fór liðið alla leið í bikarúrslit árið 1987.

Grétar er leikjahæsti leikmaður Víðis í efstu deild ásamt Vilbergi Þorvaldssyni með 71 leik og hefur jafnframt skorað flest mörk fyrir Víði í efstu deild, 18 talsins. Á ferli sínum lék Grétar alls 323 leiki og skoraði 159 mörk fyrir Víði. Grétar lék einnig með Keflavík, FH og Grindavík. Þá lék hann 3 A-landsleiki.

\"\"

Eftir að Grétar lagði skóna á hilluna gerðist hann aðstoðarþjálfari hjá liðinu og sat í stjórn félagsins í fjölda ára, bæði aðalstjórn og unglingaráði.

Grétar spilaði síðan með Old Boys liði Keflavíkur/Víðis og vann nokkra Íslandsmeistaratitla með þeim.

Grétar Einarsson var frábær liðsmaður sem allir vildu hafa í sínu liði. Hann hafði mikið keppnisskap og sigurvilja og var mikill markaskorari. Það var líka alltaf stutt í grínið hjá Grétari og það var gaman að vera í kringum hann.

Knattspyrnufélagið Víðir Garði vottar fjölskyldu og vinum Grétars sínar dýpstu samúðarkveðjur.

Minningin um frábæran leikmann og góðan dreng lifir.

Hvíldu í friði Grétar.