Fullkomin smjörklípa

Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur segir Vigdísi Hauksdóttur og Guðlaug Þór Þórðarson hafa staðið sig einstaklega vel með að fá alla fjölmiðla og fleiri til að fjalla um innihald skýrslunnar sem þau kynntu í gær. Sigurbjörg segir árangur þeirra einstakan. Um gamalt mál sé að ræða.

Sigurbjörg segir Vigdísi og Guðlaug Þór hafa náð langt með smjörklípunni og beint kastljósi fjölmiðla frá vandræðum bæði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

Viðtal við Sigurbjörgu er í Þjóðbraut klukkan 21:00 í kvöld.