Fjárlagafrumvarp 2020: framlög til umhverfismála hækka um rúman milljarð

Framlög til umhverfismála hækka um rúman einn milljarð króna milli áranna 2019 og 2020 samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í síðustu viku. Er þá ekki meðtalin hækkun vegna launa- og verðlagsbóta sem nema tæpum 400 milljónum króna.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að auka framlög til til loftslagstengdra verkefna á árinu 2020 um 455 milljónir króna. Er það í samræmi við ákvæði í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna og fjármálaáætlun 2020-2024. Einkum er um að ræða verkefni í tengslum við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.

Þá er einnig gert ráð fyrir að auka framlög til uppbyggingu innviða, rannsókna og vöktunar á svæðum í íslenskri náttúru um 255 milljónir króna. Enn fremur verða framlög til landvörslu auknar um 270 milljónir króna.

Framlög vegna hringrásarhagkerfisins aukast um tæpar 100 milljónir króna á árinu 2020. Markmiðið með hringrásarhagkerfinu er að draga úr sóun, auka endurvinnslu og endurnýtingu og halda verðmætum eins lengi og hægt er í umferð.

Í heildina hafa fjárveitingar til umhverfismála aukist um rúm 24 prósent að raunvirði það sem af er kjörtímabilinu og gert er ráð fyrir enn frekari aukningu á komandi árum.